Júlía Oddsdóttir - hugrekki og styrkur

Hver er Júlía ?
Árið 2024 gerðist Synia stuðningsaðli Júlíu Oddsdóttur. Vissulega ekki mjög langsótt þar sem hún er dóttir okkar en sagan hennar má heyrast:
Grafarvogsbúinn Júlía var ein af fyrstu iðkendum fimleikadeildar Fjölnis, fyrst í áhaldafimleikum og síðar hópfimleikum. Samhliða menntaskóla færði hún sig yfir í frjálsar íþróttir og síðar í þríþraut og CrossFit. Roller derby, íslenskað sem hjólaskautaat, varð á vegi hennar og Covid tímann notaði hún til að byggja upp aðstöðu fyrir Roller Derby Iceland ásamt öflugum hópi. Júlía æfir enn og keppir í hjólaskautaati og er í íslenska landsliðinu, sem fer á heimsmeistaramótið í Austurríki í júlí 2025.
Leið Júlíu lá jafnframt inn í hjólreiðadeild Breiðabliks og hún keppti undir þeirra merkjum. Árið 2022 fékk hún einnig styrktarsamning við íslenska reiðhjólaverslun sem útvegaði henni hjól og fatnað.
Í lok sumars 2023 fengum við þær gleðifréttir að dóttir okkar ætti von á sínu fyrsta barni.
Stuttu eftir að hún tilkynnti um óléttuna fékk hún skilaboð frá styrktaraðilanum sem hún hafði ötullega auglýst, að fyrst hún væri ólétt þá væri best að hún myndi skila hjólinu. Skilaboðin voru á þann veg að samstarfi þeirra væri lokið og eftir þessi skilaboð hafði hjólreiðaverslunin svo ekki samband aftur.
Eftir allar umræður um stöðu íþróttakvenna sem eignast börn þá vorum við tæpast að trúa þessari framkomu í jafnréttisríkinu Íslandi, en greinilega er ennþá langt í land á sumum sviðum.
Júlía setti gamalt hjól á trainer til að halda sér í formi á meðgöngu og hjólaði nánast fram að fæðingu. Hún þjálfaði spinningtíma þar til á 37. viku. Lítill drengur fæddist 17. febrúar og ekki leið á löngu þar til móðirin var komin á trainerinn meðan sá litli ýmist svaf eða fylgdist áhugasamur með.
Fyrsta keppni sumarsins 2024 var í maí þar sem amman gekk um með lítinn stubb í vagni meðan móðirin sigraði í sínum flokki og var svo tiltæk í að gefa honum að drekka.
Staðan í byrjun sumars var þannig að Júlía var að keppa á eldra hjóli, sem var alls ekki málið í keppni þeirra bestu, svo fljótlega kom upp sú staða að við vildum styrkja hana í kaupum á nýju hjóli.
Eftir að hafa sagt sögu hennar opinberlega kom símtal frá Ásdísi Valsdóttur eiganda fasteignasölunnar Húsaskjóls og var hún ásamt fjölmörgum öðrum mjög ósátt við framkomuna sem Júlía hafði mátt þola. Tilgangur símtalsins var að bjóða styrk frá Húsaskjóli til kaupa á nýju reiðhjóli og er Húsaskjól nú einn af styrktaraðilum Júlíu ásamt Synia.
Það fór svo að Júlía, sem hafði fært sig í B-flokk eftir meðgöngu og fæðingu, var á palli á öllum þeim mótum sem hún tók þátt í um sumarið, oftar en ekki í 1.sæti og er nú komin aftur í Elite-flokk. Hún tók þátt í móti í Danmörku um páskana 2025 og átti þar annan stysta samanlagða tíma og þriðja hæsta stigafjölda íslensku kvennanna sem tóku þátt. Það segir að hún er algjörlega komin í hóp þeirra bestu á Íslandi.
Í apríl 2025 bárust þær fréttir frá Hjólreiðasambandi Íslands að Júlía hafði verið valin í landslið Íslands, sem keppir á Smáþjóðaleikunum í Andorra í lok maí.
Við erum óendanlega stolt af okkar konu, sem auk þess að hjóla hefur aðstoðað okkur við Rannís styrkumsóknarskrif þar sem hún er með BS í Hugbúnaðarverkfræði og deilir oft á tíðum viðfangsefnum okkar í áskorunum samþættinga á vinnustað sínum Gangverki.
Nú þegar Synia er að stíga fram á sjónarsviðið sem fullbúin lausn til að annast stýringu samþættinga innan upplýsingatækniumhverfis fyrirtækja kviknaði sú hugmynd að fá Júlíu til liðs við okkur til að vekja athygli á bæði okkur og henni sjálfri.
Á básnum okkar á Iceland Innovation Week 2025 verður hjól á trainer og mun orkan frá hjólinu knýja samþættingar í gegnum Synia. Það veltur því allt á Júlíu hversu vel mun takast að byggja demo grunn Synia þar sem vörur, viðskiptavinir og sölupantanir verða til í Microsoft CRM, Hubspot og Business Central. Nýjum aðilum á IIW býðst jafnframt að skrá sig á póstlista og geta meira að segja orðið hluti demo-gagna ef þeir eru því samþykkir.
Saga Júlíu endurspeglar hversu langt elja, hugrekki og styrkur getur komið okkur í mótlæti. Saga sem má ekki liggja ósögð.
Júlía leitar nú nýrra stuðningsaðila í kaupum á öðru hjóli sem gerir henni kleift að taka þátt í fleiri mótum í sumar. Við hvetjum fyrirtæki sem vilja verða hluti af sögu Júlíu að stíga fram